Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sjálfstæðismenn


Einhverjir  virðast aumir í skrokknum,
aðrir í sálinni (lítið).
En auðvitað ríkir eining í flokknum;
annað væri nú skrítið!


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frænka

 Hvort sem henni kann að líka það betur eða verr, þá er nýráðinn aðstoðarmaður borgarstjóra allmikið skyld bloggaranum hallkri.

Þótt standi enn Ólaf styr um,
strax mun því kippa í lag
framsóknarkona fyrrum;
frænka mín enn í dag.


mbl.is Ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ

www.visir.is Fyrrverandi borgarstjóri klökknaði í ráðhúsinu

Þykkur moldviðrismökkur
mengar í kringum REI.
Vesalings Villi er klökkur.
Víkur þó ekki. NEI.


Bót í máli

www.visir.is  Fagfólk valdi fanga saman

 

Ekki þykir öllum gaman.
Allt þó málið bætti
að fagfólk valdi fanga saman
með fagmannlegum hætti.


Ófremdarástand

Ég heyrði í útvarpi talað um slæma aðstöðu í fangelsum landsins og vandræði vegna þrengsla.
Mér datt nú í hug að kannski mundi líða að því að menn myndu hóta að hætta afbrotum í mótmælaskyni!

Þótt aðsóknin teljist vart ennþá mjög dræm,
ört getur vandinn stækkað,
því aðstaða í fangelsum er orðin svo slæm
að afbrotum gæti fækkað.


Samanburður

Hvorugur hyggst stíga sínum stól af.
Stéttarvitund lifir báðum hjá.
Fleiri styðja Ólaf heldur en Ólaf,
eftir því sem Gallup segir frá.
mbl.is 86% styðja Ólaf Ragnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jamm og jæja

www.visir.is  Sigurjón með 13,6 milljónir á mánuði

Landsbankinn kann greinilega vel að meta dugnað sinna manna……

Dável virðast dugnað meta.
Dýrtíð ennþá vex.
Það myndu fleiri þegið geta
13,6.


mbl.is Nærri 40 milljarða hagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyfarakaup - eða þannig

www.visir.is Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6 á 580 milljónir

Óli og Villi voru snöggir að bjarga götumynd Laugavegar. Það er kannski ekki algjörlega rétt með farið í vísunni að
þeir hafi keypt höll. En þið hafið auðvitað heyrt talað um skáldaleyfi!
 

Á vandamálunum vinna þeir bug.
Veglega kaupa  höll.
Ég dáist að þessu, en dettur í hug:
Dýr myndi borgin öll.


mbl.is Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki neitt káf

www.visir.is  Alvöru þreifingar milli Sjálfstæðismanna og Vg

Oft munu í pólitík allskonar hreyfingar,
og ástæða til að grunda þær,
Þótt auðvitað séu alvöru þreifingar
einkamál þeirra sem stunda þær!


Er mótbáran rök?

Dómurum tæplega duga mun skrök.
Drengsins staða var góð.
Auðvitað færði sko ráðherrann rök:
Reynslu í að dæma ljóð!
mbl.is Dómarafélag Íslands: Ráðherra færði ekki viðhlítandi rök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 128018

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband