Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

???

Stóð kannski til að deila gróða útrásargreifanna á milli landsmanna allra? Ég held ekki. Hversvegna þá tapinu?

Seðlabankastjóri

Ekkert um Davíð ég dylgi.
Dónaskap lítils ég met.
En skoðun sú fær nokkurt fylgi
að flytja sig ætt’ann um set.

Matarbakki

Á dögunum sá ég í Mogganum fyrirsögn: Heildarmat á Bakka.
Kannski er ég að misskilja eitthvað.


Þegar bæði þurrt og vott
Þingeyingar smakka
hafa væri held ég gott
heildarmat á bakka.

Vorboðinn ljúfi

Nú geta þeir andað rólegar sem lifað hafa í stöðugum ótta um að á okkur verði ráðist.

Brátt er kveðinn burtu vetur
berst um loftið dírrindí.
Mörgum líður mikið betur
með að heyra þotugný.


mbl.is Koma Frakka liður í Evrópuvæðingu öryggismála Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðvöðull

Hann Magnús ríki á Móalandi
var mikið fyrir að sóa landi.
Burtu hann fer;
brottrækur ger,
því bændurnir telja hann óalandi.

Til fyrirmyndar

P4060050Þessi mynd er úr Hafnarstræti á Akureyri. Bláa húsið er númer 31.
Það sker sig ekki úr heillegri götumyndinni, en hefur þó þá sérstöðu að vera u.þ.b. 90 árum yngra en hin húsin. Þarna var sem sagt fyrir nokkrum árum byggt nýtt hús með gömlu útliti. Nokkuð sem mætti gera meira af þar sem akkur er í að varðveita einhverjar heildarmyndir. Það eina sem er í rauninni frábrugðið að ytra útliti húsunum í kring eru gluggarnir, en þeir sitja heldur innar í veggjunum, sem eru allnokkru þykkri  en í þessum gömlu timburhúsum.

Ég er þeirrar skoðunar að oft sé þessi  leið hagkvæmari og betri til umhverfisverndunar; þ.e. að byggja nýtt frá grunni heldur en að halda upp á fáeinar heillegar spýtur úr illa förnum húsum, byggja í kringum þær, og telja svo að um uppgert hús sé að ræða, þótt harla fátt sé upprunalegt þegar upp er staðið.


Ræs

Að fara í þotuflug með Geira
fannst mér afar nice,
þótt það gleddi mig nú meira
að mega hitta Rice.


mbl.is Ingibjörg Sólrún hittir Rice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanbrögð

www.visir.is  Kröfu RÚV í launaleyndarmálinu hafnað

Ýmis verða ráðin reynd
ríkisútvarpanna
sem verða nú að létta leynd
af launum sinna manna.


Bættur skaðinn

www.visir.is  Ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkur klofnaði vegna ESB

Ég held að það geti hugnast mér
að heildin í þessu rofni 
og geri ekkert til í sjálfu sér
þótt sjálfstæðislokkurinn klofni.


Slæmt

www.visir.is  Langþreyttir á ástandinu inni á Kleppi

Að heilbrigðir þurfi að hafast við á Kleppi
er heldur skítt ef lengi þarf að standa.
Væri ei ráð hjá Reykjavíkurhreppi
að reyna nú að laga þennan vanda?


Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 127927

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband