Kosningar nálgast

Undrarödd þeirra, sem atkvæði þrá,
aldeilis hvergi er þögnuð.
Með blíðmælgi á áttina benda; því sjá,
ég boða yður mikinn fögnuð.


Framboðstexti

Framboðstexti. Selst hæstbjóðanda.

Ég skal sko gefa ykkur fús
elliheimili og sjúkrahús,
ef þið kjósið,
ef þið bara kjósið,
ef þið kjósið mig!

Ég skal sýna hvað í mér býr,
útvega vegi, göng og brýr,
ef þið kjósið,
ef þið bara kjósið,
ef þið kjósið mig!

Hinsvegar aðeins hungurlús
hljóta þið munuð í ykkar krús,
ef þið kjósið,
ef þið bara kjósið,
aðra heldur en mig!


mbl.is Krafan um styttra kjörtímabil óraunhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. október 2016

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband