31.1.2019 | 13:11
Bjargráð Bjarna
Oft veldur nauðar og ofgnóttar bil
erfiðu samningaþjarki.
Til þess að laga það leggjum við til
lækkun á frítekjumarki.
Skattatillögur ASÍ auki jaðarskatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2019 | 17:44
Sýslað í Eyjum
Vikið hefur fetið frá
flokksböndunum tryggu.
Páli líst víst ekkert á
atferlið hjá Siggu.
Páll óánægður með dómsmálaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2019 | 08:30
Skítur á priki
Stoltur kynnir holu-Hjálmar,
hróðugur, laus við nísku:
Stæðilegir Strandapálmar!
(strá eru dottin úr tísku)
Í hvaða heimi lifir Hjálmar Sveinsson? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2019 | 08:04
Klausturbólga
Svekktir vilja sumir banna
svona rugludólga,
enda flestra Miðflokksmanna
á meðal nokkur ólga.
Ólga meðal Miðflokksmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2019 | 19:01
Á Alþingi eftir hádegið
Umræðupólitík veggjaldavæðingar
vansælir nefndarmenn studdu.
En burgeisar núna og bókmenntafræðingar
blaða í hvítri skruddu.
Veggjöldin eiga nokkuð í land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2019 | 17:21
Átti fundurinn ekki heima á Klaustri?
Málefni fundarins mun ég nú skýra:
Miðflokknum búin var hefnd.
En aumingja Bergþór vill auðvitað stýra
auðlindasamgöngunefnd.
Orðbragðið engu skárra en á Klaustri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2019 | 10:54
Drög að sannleika
Píratarnir naga neglur,
nú skal leggja drög...
Augljóst mun að ýmsar reglur
ekki standast lög.
Verði að meta sannleiksgildi ummælanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2019 | 14:54
Verði varta vart
Húsráð vísast ágæt enn
eru hér við lýði;
brottnám varta bæta senn
banananna hýði.
Bananahýði geta læknað vörtur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2019 | 19:20
Misskipting
Margan stóran mann ég sá
mjaka til sín arði.
Öllu minni annar lá
óbættur hjá garði.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2019 | 09:42
Nakinn maður og annar í kjólfötum
Gjarn er á að gera hrekki
Gunnar Bragi
og sumt af því sem annars ekki
er í lagi.
Týndi fötunum og man ekki neitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 16
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 128117
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- arnorbl
- holmdish
- olinathorv
- raksig
- jona-g
- marzibil
- steinunnolina
- natturbarn
- eythora
- svanurg
- saemi7
- eggmann
- mynd
- hrafnaspark
- torfusamtokin
- moguleikhusid
- ktedd
- zeriaph
- huldumenn
- gudni-is
- sabroe
- baenamaer
- limran
- hof
- gudmunduroli
- vestskafttenor
- visur7
- vefritid
- hoskibui
- gattin
- jonvalurjensson
- rattati
- bardi
- dagursv
- elfarlogi
- janus890
- hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði