Endurvinnsla í hættu

Margir á ráðherrum missa nú trú.
Markaður skráveifu gerði
ríkisstjórn Íslands, því raunin er sú
að rusl hefur lækkað í verði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Árnason

Já það er rétt hjá þér. Rusl hefur lækkað í verði! Ansi góð þessi. En takk fyrir innlit hjá mér og falleg orð. Kveðja

Eyþór Árnason, 15.1.2009 kl. 22:08

2 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Skemmtileg vísa eins og svo oft áður. Þessu krönglaði ég saman áðan.

Vafalaust án vansa þeir
vinna landsins synir.
Ingibjörg og einnig Geir
og allir hinir.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 16.1.2009 kl. 16:46

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Við höfum misjafnar aðferðir við að leita okkur tilfinningalegrar útrásar. Þú yrkir meitlaðar og skondnar ferskeytlur. Ég skrifa... og yfirleitt alltof langt:-/

Við sjáumst e.t.v. á morgun. Sá það á mynd í blöðunum að þú hefðir verið með um síðustu helgi Frétti það hjá konunni þinni að hún hefði látið sig hafa það að fara með þér þá.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.1.2009 kl. 04:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 128103

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband