Í borginni

http://visir.is/article/20071120/FRETTIR01/71120077/-1/FRETTIR

Við deildum því saman í dag og í gær.
Það drottnar í vetrarins hörkum.
Það sveipar oss líkt og hinn svalandi blær;
svifryk er yfir mörkum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

Ekki að ég sé nú neitt ljóðskáld,- en þessu verð ég að svara... þó það sé hnoð.

Ég deildi því ekki með þér í gærog ekkert í dag að ég held.Svifrykið aldrei í sveitina nær

svo loftið er tært framá kveld.

Það er ljóst hvar er best að vera, hmmm.

Hulda Brynjólfsdóttir, 21.11.2007 kl. 13:57

2 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

Æ...

Ég verð að setja þetta inn aftur svo það komi rétt fram:

Ég deildi því ekki með þér í gær

og ekkert í dag að ég held.

Svifrykið aldrei í sveitina nær,

svo loftið er tært framá kveld.

Hulda Brynjólfsdóttir, 21.11.2007 kl. 13:58

3 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Rétt er það - ekki deildum við því saman. Ég deildi því heldur ekki með borgarbúum, þar sem ég var heima hjá mér norður á Akureyri. Sjálfsagt er eitthvert svifryk hér líka, ég þekki nú ekki vel , það er svo stutt síðan það var fundið upp. Það kom fyrir að það var eitthvert ryk í sveitinni í gamla daga en það sveif ekki, heldur fauk.
Vísan þín væri alveg ágæt ef í henni væru stuðlar og höfuðstafir, en það er alveg hægt að hnoða án þeirra! 

Hallmundur Kristinsson, 21.11.2007 kl. 18:50

4 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

Í fyrstu hendingunni eru sérhljóðar stuðlar og höfuðstafir.

Í seinni eru það "sv"

Ertu ekki sáttur við að það sé notað svona???

Hulda Brynjólfsdóttir, 22.11.2007 kl. 10:56

5 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Nei, ekki alveg sáttur. Önnur og þriðja lína eru í góðu lagi. Þetta er spurning um hákveður og lágkveður - áhersluatkvæði - ekki má heldur vera of langt bil á milli stuðla oghöfuðstafa. Ég er raunar afar lélegur í bragfræðinni sem slíkri en yrki eftir tilfinningu sem mótast hefur af hefðinni. En það er hægt að nálgast bragfræði víða, t.d. á
http://heimskringla.net  . Gallinn er sá að bragfræðin getur virst svolítið tyrfin, a.m.k. hefur mér þótt það. En maður heyrir það  nokk ef maður les vísurnar á eðlilegan máta hvort stuðlar og höfuðstafir lenda utan áhersluatkvæða.

Lestu þetta og heyrðu muninn:

Svifrykið aldrei í sveitina nær,
svo loftið er tært framá kveld.

Svifrykið aldrei í sveitina nær,
lo svoftið er tært framá kveld.

Skilurðu hvað ég meina? 

Hallmundur Kristinsson, 22.11.2007 kl. 12:43

6 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

Jú, ég skil þig alveg. Ég er ekki vel að mér heldur í bragfræðinni. Veit þó að ef S er notað í stuðlana, þá er nauðsynlegt að næsti stafur á eftir sé líka eins, þess vegna notaði ég sv, hef heyrt að seinni stuðullinn eigi helst (eða alltaf) að vera í næstsíðasta orði fyrri línu. Ég hef enga hugmynd um stuðlareglu gagnvart sérhljóðum,- enda er ég ekki hagyrðingur.  

En mér finnst gaman að góðum vísum og les þær fyrir mig,- mér til ánægju öðru hvuru.

Hulda Brynjólfsdóttir, 24.11.2007 kl. 14:15

7 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

--- En þar fyrir utan er alltof mikið af svifryki allsstaðar,- skilst mér.

Hulda Brynjólfsdóttir, 24.11.2007 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 81
  • Frá upphafi: 128076

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband