Færsluflokkur: Ljóð

Það er nú það

Getur oft á steinum steytt.
Stöðugt margir rausa,
þótt vissulega varla neitt
viti í sína hausa.

Umvöndun

Vindur fer úr fréttunum
og frasar verða bitlausir
hjá þeim sem tala alltaf um
hve aðrir séu vitlausir!

Já einmitt

Vini okkar vil ég hrósa.
Vond er ruslakista.
Flestir þeir sem fáir kjósa
færu vel á lista.

Það skal tekið fram að þetta á eingöngu við um þann lista sem umræddur vinur vildi sitja.

mbl.is „Ég kveð stjórnmálin sáttur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hirðuleysi?

Stundum ég hálfilla hirði
um hugsanlegt efni í ljóð,
enda er það varla þess virði
ef vísan er ekki góð.

Vöntunarleysi

Um þetta ég orti.
Enn skal rökum beitt:
Ef skortur er á skorti,
skortir ekki neitt.

Samvinna okkar séra Hallgríms

Ég bendi á að banvæn pest
byrjar oft með hnerra.
"Ungum er það allra best
að óttast Guð sinn herra."
 
"Þeim mun viskan veitast mest
og virðing aldrei þverra,"
er setja sig á háan hest
og hafna öllu verra.

Ætli það ekki bara?

Máttur vísna er margir sjá
mun ótalfaldur.
Þegar ég yrki er ég þá
áhrifavaldur?


Nokkurt samansafn

Komið hefur fyrir besta fólk að muna ekki fyrir hvað uppstigningardagur stendur.



Nú skal skýrð í nokkrum línum


nafngjöf dags í ljóði:


Fór að gá að föður sínum


frelsarinn okkar góði.

 

 

Nú er hún Stebbabúð stekkur.


Stuðlaði að fallinu hrekkur.


Snorri með snilli


sneið fékk af hylli:


Á verslun hans vísaði hlekkur!

 

 

Ákveðið tilefni er ekki gefið upp fyrir þessa vísu,

en það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað:




Oft var til útlanda sendinefnd send.


Sífellt fjölgaði ræðunum.


En helvíti finnst mér nú handahófskennd


hnattræn skipting á gæðunum.

 

 

Misheppnað atriði. Tekið skal fram til að gæta fullrar varúðar að þetta er uppspuni frá rótum:



Smeygðu sér bakraddir smeykar inn,


smámæltar, valtar á fótunum.


En verra að víóluleikarinn


var ekki með á nótunum.

 

 


Það er augljós, þykir mér,


þörf á einum léttum


svona þegar ekkert er


almennilegt í fréttum!

 


Ef á flest það svört er sýn


sem er efst á baugi,


þá er ljóst að það er brýn


þörf á léttu spaugi.

 



Nú skal ekki að neinum sneitt.


Nú skal látið vaða!


Vísa ort um varla neitt


veldur tæpast skaða.

 



Sérhverja nótt og sérhvern dag


samviska manna vakir.


Bindast kann um það bræðralag


að bera af sér allar sakir.

 



Víst er svo málum varið að


vel ég aðstæður þekki;


ég get svei mér þá svarið það:


Svoleiðis var það ekki!

 



Einn þótt kuldinn alltaf bagi,


öðrum finnst of heitt,


en eilíft þus af þessu tagi


þýðir ekki neitt.

 



Þó að þið öskrið og æpið


og ykkur sé bölvið tamt,


er ekki heldur hæpið


að haga sér svona samt?

 



Til að gá hvort veröldin virki


ég vakna á morgnana hress,


þá gerist það oft að ég yrki


umfram tilefni þess!

 

 

 

 

 


Eitthvað verður undan að láta

Víst er hægt á gosi að græða.
Góður reynist arðurinn.
En eitthvað lætur að sér hæða
eystri varnargarðurinn.


mbl.is Hraun rennur yfir eystri varnargarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skil ekki alveg...

"get­ur verið í sótt­kví eða ein­angr­un vegna gruns um að hann sé ekki smitaður af far­sótt ef staðfest er að svo sé."
Lagamál eða bara venjulegt fjölmiðlamál?


mbl.is Bent á að tilkynna mótmæli á Covid-spjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 129076

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband