Færsluflokkur: Ljóð
22.11.2022 | 14:07
Þú eina hjartans...
Einhverju sinni reyndi ég að heyra hvernig textinn var sem karlakórinn söng. Mér heyrðist hann vera einhvernveginn svona:
Þú hreina svarta bindið mitt.
við hörmum spilltra vanda.
Fram laðar kvartett trosið sitt,
þá er hér naumast andað.
Ég finn mér innst í hálsi hrjá
- svo marga þynnri hendir-
þar sneið af pylsu er föst á ská,
svo nú kom verri endir.
En nú hef ég komist yfir þennan texta og er hann á þennan veg:
Þú eina hjartans yndið mitt
í örmum villtra stranda
þar aðeins bjarta brosið þitt
mig ber til draumalanda.
Í þinni finn ég frjálsri brá
svo fagrar innri kenndir
er seiða til sín traust og þrá
í trú sem hærra bendir.
Þannig var nú það.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2022 | 11:44
Stríðshanskinn
Aðstandendur í stöðugum ótta og í felum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2022 | 22:08
Leirburður II
Einhver umræða var um hvort guð væri hugsanlega kona:
Uppá himni ríkir guð minn góður.
Á gjörðum hans er sjaldan nokkur ljóður.
Þótt kallist ég um kyn hans varla fróður
sem kona er hann undarlega hljóður.
Skrattinn ríkir hér á jörð sem jarl.
Jafnan á í vonsku heimsins metið.
Þó ætla ég hann oftast talinn karl
sé annars ekki sérstaklega getið.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2022 | 18:05
Leirburður
Ég var lengi þátttakandi á Leir, hinum fræga póstlista hagyrðinga, sem var við lýði á netinu frá árinu 1992 til 2020.
Ég geri mér stundum til dundurs að glugga í kveðskap minn á þeim vettvangi:
Þó að vetrarþokan grá
þjaki mannsins huga,
til að ljóða leirinn á
leikni virðist duga.
Mér þótti eitthvað svo skáldlegt og myndrænt að hugsa til mannsins í þokunni að mig langaði að gera aðra vísu. En þegar ég hafði skrifað fyrstu hendinguna tók ég eftir því að hana var búið að yrkja fyrir löngu. Ég notaði því aðra hendingu til að reyna að sveigja upp úr hjólförunum. Ég held að það hafi tekist að því leytinu til að seinni helmingur vísunnar er vonandi nýsmíði:
Þegar vetrarþokan grá
þig vill inni fjötra
í hægðum sínum helst vill þá
hugur skáldsins lötra.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2022 | 18:01
Rakkarapakk
Vefur mbl.is lá niðri vegna netárásar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2022 | 23:00
Stefnir í þrot?
Vísnagerð virðist snúin
þótt verði hún tæpast flúin.
Í ljóðstaf er lagt,
en langflest er sagt
og rímorðin bráðum búin!
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2022 | 22:47
Eða...
Má ekki lika kalla það moðreyk?
Sami púðurreykurinn og í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2022 | 21:44
Á degi íslenskrar tungu
miklum mun ríkari en hún var fyrir hans tíma.
Við erum frændur víst, Jónas og jeg.
Nokkrar vísur hef ég svo sem sett saman, sei sei já. Ég bjó líka til nýyrði fyrir nokkrum árum. Sem raunar tengist íslenskri tungu.
Ég er afar montinn af því. Það er ekki nýtt orð yfir tungumálið sjálft, heldur verkfærið sem kemur því til skila: Orðaflaumsbleðill!
En ég skáka samt varla frænda gamla.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2022 | 21:18
Allt í góðu
Að selja banka er líka list.
List er til að njóta.
Þótt við höfum milljarð misst,
að mestu er það til bóta.
Aðstoðarmaður Bjarna segir rangt með mál farið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2022 | 21:22
Í Kastljósinu
Konu mæta karlinn ekki vildi.
Kastljósstýra, þú að honum sóttir.
Það var eins og blessuð skepnan skildi
að skaðleg yrði Kristrún Frostadóttir.
Forsenda að Bjarni væri einn í viðtali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- arnorbl
- holmdish
- olinathorv
- raksig
- jona-g
- marzibil
- steinunnolina
- natturbarn
- eythora
- svanurg
- saemi7
- eggmann
- mynd
- hrafnaspark
- torfusamtokin
- moguleikhusid
- ktedd
- zeriaph
- huldumenn
- gudni-is
- sabroe
- baenamaer
- limran
- hof
- gudmunduroli
- vestskafttenor
- visur7
- vefritid
- hoskibui
- gattin
- jonvalurjensson
- rattati
- bardi
- dagursv
- elfarlogi
- janus890
- hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði