Á erlendri grund

Upplýsingar oftast sel
ódýrar en keypti:
Sigga mínum mæltist vel,
mjöðinn síðan gleypti.


mbl.is Sigurður Ingi reytti af sér brandarana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við vera svona?

Rengja skal flesta og gruna um græsku,
greina má spillingu hvarvetna helst.
Ei þarf að leita að gæðum og gæsku,
góðmennska varla til mannkosta telst.


mbl.is Viljum við vera óþolandi og vondar fyrirmyndir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlir vendir...

Válegt er og varast skyldi
að veifa gömlu amboði.
Talist gæti mesta mildi
að margir séu í framboði.


mbl.is Ólíklegt að Davíð taki fylgi af Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagræði

Um það er nú vart að fletta mörgum Morgunblöðum
að Móri eflaust gjarnan vildi stöðu sína bætta.
Það auðveldaði honum leiðir upp að Bessastöðum
ef Óli gamli hætti við að hætta við að hætta.

 

 


mbl.is „Í þessu embætti eru menn einir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu

Sagt var í fréttum að engar upplýsingar lægju fyrir um tilgang félagsins. Liggur það ekki ljóst fyrir? Auðvitað uppeldi sonarins!

 


mbl.is Foreldrar Bjarna áttu aflandsfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýli

Gott er að eiga til þess tól
að taka á ýmsum krísum
og hafa öruggt skálkaskjól
í skattaparadísum.


mbl.is Fjarstaddir umræður um aflandsfélagarannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í fjósinu

Frá því ég man fyrst eftir mér minnist ég þess að hafa af og til heyrt talað um að moka þyrfti framsóknarflórinn. Líklega er ekkert óeðlilegt við það; að minnsta kosti man ég ekki betur en þegar ég vann við að moka flórinn í fjósinu heima í gamla daga hafi þurft að gera það nokkrum sinnum á sólarhring hvern dag allan ársins hring.


Margir

Nú svara skal þjóðfélags þörfum
og þjóna fólki í lörfum.
Við úr hægindum hörfum
og höfum nú látið af störfum.


mbl.is Kristján Örn lætur af störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullfiskar

Óþarfi virðist mér alla að gruna
þótt einhverjir hlaupi í var
og eigi svolítið meira en þeir muna
og minnast alls ekki hvar!


mbl.is Minnisleysi og misskilningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringiða fjármálamarkaða

Ekki er þetta illa meint.
Eflaust mætti sekta

þá sem ekki geta greint
gerfifé frá ekta.


mbl.is Ekki um markaðsmisnotkun að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband