Varúð

Allir þeir sem yrkja stökur
ættu nú að vara sig,
enda tíðkast yfirtökur
og því rétt að spara sig.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Í upphafi allt var hér skapað
og ekki að neinu var hrapað.
Rauðahafið er rautt
og það dauða er dautt
en enginn veit ennþá hver drap það.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 9.10.2008 kl. 08:17

2 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Ég yfirtek þessa, Benedikt!   

Hallmundur Kristinsson, 9.10.2008 kl. 08:22

3 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Í Hofsstaðaskóla voru fáir karlmenn og við því oft ávarpaðir í kvenkyni. Á löngum fundi sátum við tveir, ég og Eiríkur, en okkur var lofað kaffi og kleinum í fundarhléi. Í hléinu var ort.

Í kaffi og kleinu okkur langar
eftir kröftugar ræður og strangar.
Nú hættum við hér,
það heppilegt er
því við Eiríkur erum svo svangar.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 9.10.2008 kl. 13:37

4 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Á kennaraþingi var rætt um samvinnu og komu menn sér saman um að hún þyrfti að vera rétt og helst lóðrétt ef árangur ætti að nást. Þá var ort:


Harður er kjarni vors kennarablóðs
ef kraftana stillum til samans.
Sé samvinnan lóðrétt, hún leiðir til góðs
en sú lárétta er meira til gamans.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 9.10.2008 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 128813

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband