23.2.2008 | 13:51
Aðgát skal höfð
Þegar ég lít yfir bloggfærslur mínar tek ég eftir að nokkuð margar þeirra fjalla á einhvern hátt um blessaðan karlinn hann Villa. Maður má passa sig að leggja menn ekki í einelti þótt þeir liggi vel við höggi. Það mættu fréttamenn raunar einnig íhuga.
Þótt ekki sé talað um boð eða bann,
bloggfærslur skyldu menn vanda,
og sparka ei með látum í liggjandi mann,
þótt líklega telji hann sig standa.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- arnorbl
- holmdish
- olinathorv
- raksig
- jona-g
- marzibil
- steinunnolina
- natturbarn
- eythora
- svanurg
- saemi7
- eggmann
- mynd
- hrafnaspark
- torfusamtokin
- moguleikhusid
- ktedd
- zeriaph
- huldumenn
- gudni-is
- sabroe
- baenamaer
- limran
- hof
- gudmunduroli
- vestskafttenor
- visur7
- vefritid
- hoskibui
- gattin
- jonvalurjensson
- rattati
- bardi
- dagursv
- elfarlogi
- janus890
- hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Þegar menn þekkja ekki sín takmörk og þrjóskast við eins og Villi, er meiri hætta á að fá á sig neikvæðan stimpil og þar með að bjóða meiri umræðu heim. En ég var að velta fyrir mér í sambandi niðurstöðu hans um að halda áfram. Getur skeð að hann hafi gleymt til hvers hann skreið undir feldinn til að " hugsa sinn gang " ?. Kveðskapurinn stendur alltaf fyrir sínu,takk fyrir hann.
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 24.2.2008 kl. 09:05
Jú, maðurinn hefur virst afar gleyminn á köflum!
Hallmundur Kristinsson, 24.2.2008 kl. 10:02
Ég gleymi stundum hvar ég hef látið bíllyklana! Ætli ég þurfi að láta af störfum í sóknarnefnd ?
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 09:34
Leggstu undir feld og hugsaðu málið í tvær vikur. Taktu þá ákvörðun um óbreytt ástand. Ef þú finnur ekki bílinn þinn,þá skaltu endurskoða afstöðu þína
Hallmundur Kristinsson, 25.2.2008 kl. 09:43
Sæll fyrrum Eyfirðingur. Lyklarnir skila sér alltaf aftur.
Amma mín,sagði alltaf þegar hún eða einhver á heimilinu fann ekki hlut sem átti að vera á einhverjum réttum stað. " Huldufólkið hefur þurft að nota þetta." Og það brást aldrei að viðkomandi hlutur var auðvitað þar sem hann átti að vera. Rétti staðurinn fannst bara ekki alveg strax.
Ég er Reykvíkingur, þó ég hefi búið fram í Eyjafirði í tæp 40 ár. Er núna heima í Reykjavík og ætla að vera þar, það sem eftir er ævinnar. Fædd hérna og var alltaf Reykvíkingur þessi 40 ár í Eyjafirðinum. En það er fallegt á Akureyri.
Og ég man eftir þér!
Skilaðu kveðju til sona minna og barnabarnanna, frá mér.
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 08:04
Blessuð Sigrún.
Nú kveiki ég á hver þú ert. Þótt við þekktumst nú sussum ekkert. Svona var móðir mín alltaf sunnlendingur þótt hún byggi í hér fyrir norðan öll sín fullorðinsár.
Hallmundur Kristinsson, 29.2.2008 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.