Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
arnorbl
-
holmdish
-
olinathorv
-
raksig
-
jona-g
-
marzibil
-
steinunnolina
-
natturbarn
-
eythora
-
svanurg
-
saemi7
-
eggmann
-
mynd
-
hrafnaspark
-
torfusamtokin
-
moguleikhusid
-
ktedd
-
zeriaph
-
huldumenn
-
gudni-is
-
sabroe
-
baenamaer
-
limran
-
hof
-
gudmunduroli
-
vestskafttenor
-
visur7
-
vefritid
-
hoskibui
-
gattin
-
jonvalurjensson
-
rattati
-
bardi
-
dagursv
-
elfarlogi
-
janus890
-
hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Mér finnst þessar limrur þínar afar skemmtilegar, en einhvernveginn finnst mér vanta atkvæði í síðustu línuna. Veit ekki hvort það er mín sérviska, en ég hef alltaf talið að 1. 2. og 5. lína hafi sama atkvæðafjölda og hrynjanda. Þannig hefur Skotinn það oftast, en ég sé þó meistra á við Þorstein valdemarsson breyta út af þessu, svo varla er neina reglu að sjá. Færi betur á því að segja: "(Og) er að því akkúrat núna"
Það er jafnvel hægt að tala um sér íslenskt afbrigði limrunnar, sem t.d. má sjá á stuðlum og höfuðstöfum a.m.k. í fyrstu tveim línum. Ekki að það sé neitt verra. Bara að hugsa upphátt, eða þannig..
Jón Steinar Ragnarsson, 9.12.2010 kl. 12:11
Mín beinagrind er svona:
Nana nana nanana nana
Nana nana nanana nana
Nana na na nana
Nana na na nana
Nana nana nanana nana
Ef þú fattar hvað ég er að fara.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.12.2010 kl. 12:13
Takk fyrir. Ég tel nú yfirleitt ekki atkvæðafjöldann, heldur fer eftir hvernig mér finnst hrynjandi limrunnar í heild. Mér finnst það sleppa í þessu tilviki en neita því ekki að betri væri síðasta hendingin: Og er að því einmitt núna. Kannski breyti ég þessu;-)
Hallmundur Kristinsson, 9.12.2010 kl. 12:20
Beinagrindur eru með ýmsu móti.
"Nanana nana na nana
Nanana nana na nana
Nana na na
Nana na na
Nanana nana na nana"
finnst mér skemmtilegri.
Hallmundur Kristinsson, 9.12.2010 kl. 12:27
Það eru tvær beinagrindur sem ég nota - fyrst við erum í CSI leik ;)
Sömu beinagrind og hallmundur:
Nana na | nana na | nana
Nana na | nana na | nana
Nana na | na
Nana na | na
Nana na | nana na | nana
Dæmi:Kuldin kitlar frónið.
Svo er hin sem mér finnst jafngild:
Nana na | nana na | na
Nana na | nana na | na
Nana na | nana
Nana na | nana
Nana na | nana na | na
Dæmi:Afmælislimrur
Ég nota einnig beinagrind Jóns Steinars (en sjaldnar - ekki eins hljómfagurt), meðal annars í nýlegri limru sem ég samdi fyrir stuttu, sjá dæmi (efri limran): Tvær limrur ótengdar.
Svo er það þríliðarímið - en það er enn ein útgáfan og margir sem nota hana:
Nana na | nana na | nana na
Nana na | nana na | nana na
Nana na | na (na) (na)
Nana na | na (na) (na)
Nana na | nana na | nana na
Ég set innan sviga atkvæði sem geta verið með en þurfa þess ekki.
En það er bara persónulegt mat hvers og eins hvað menn nota, auk þess sem limrunni er yfirleitt nokk sama hvernig hún er - svo fremi hún sé skemmtileg
Höskuldur Búi Jónsson, 9.12.2010 kl. 13:14
Það er rétt,Höski, limrunni er nokkuð sama! Hún tekur allri sérvisku höfundanna með fullkomnu jafnaðargeði
Hallmundur Kristinsson, 9.12.2010 kl. 13:24
Limran finnst mér löngum frat
ef lifir hún á góðum mat.
Mér finnst hún best
því minna sem sést
á andskotans, djöfulsins akkúrat.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 11.12.2010 kl. 19:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.