Engar kjarabætur

 

Æskan horfin er á braut,
ellimarka kenni.
Ég er eins og jólaskraut,
ég er gamalmenni.

 

Löngum reynist lífið staut.
Lágt ég bogann spenni.
Ég er eins og jólaskraut,
ég er gamalmenni.

 

Eðalkjara aldrei naut,
eyði þó og spenni.
Ég er eins og jólaskraut,
ég er gamalmenni.

 

Að eiga salt í grjónagraut
er gott ef elda nenni.
Ég er eins og jólaskraut,
ég er gamalmenni.

 

Hvernig mér er búin braut
blint í sjóinn renni.
Ég er eins og jólaskraut,
ég er gamalmenni.


Kjarabætur II

Væri kannski hægt að koma ellilífeyrisnautum og öryrkjum undir úrskurði kjararáðs?


Kjarabætur

"Kjararáð hefur úrskurðað um 9,3 prósenta launahækkun til þeirra sem heyra undir kjararáð. Hækkunin er afturvirk til 1. mars síðastliðinn. Þessi hækkun þýðir að grunnlaun ráðherra hækka um 107 þúsund krónur og verða 1.257 þúsund krónur eftir hækkunina en grunnlaun forsætisráðherra hækka um 118 þúsund krónur og verða tæplega 1.400 þúsund krónur."

Nú ánægju mína ég illa hem.
En hvað það kætir mitt geð
að þetta fari til þeirra sem
þurfa þess auðvitað með!


Launahækkun kjararáðsúrskurðarþega

Nú ánægju mína ég illa hem.
En hvað það kætir mitt geð
að þetta fari til þeirra sem
þurfa þess auðvitað með!


Bloggfærslur 21. nóvember 2015

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband