Færsluflokkur: Ljóð

Einmitt

Andann þótt mig ekki skorti;
ég yrki um flest,
vísan sem ég aldrei orti
er alltaf best.

Engin vísa

Þó að ég sé nú í faginu fær
og fjarri að missa á mér trúna,
of margar vísur ég gerði í gær
og get því ekki ort neitt núna!

Ein enn!

Vísa hérna enn skal ort,
engu tel það spilli;
lágstemmd fremur, laus við gort,
en löguð til af snilli.

Leitið og þér munuð finna

Færa leið um fjallið grýtt
þið finnið ef þið leitið,
eins og ég fann endurnýtt
áramótaheitið!

Utsýnið frá Sjálfshólshlaði

Vísurnar mínar í verndarflokk
veljast ættu flestar,
enda virðast þær, augljóst nokk,
allra vísna bestar!


Sigurður Ingi:

 
Ekki vil ég langa lest
leggja á Miðnesheiðina.
Ætli það sé ekki bara best
að breikka fjárans leiðina!

Brennandi spurning

Íslensk stjórnvöld strax í dag,
að staðreyndunum gefnum,
mögulega hefðu hag
af hugvíkkandi efnum.

mbl.is Segir rugl að spítalinn sé ekki vanfjármagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísnaframleiðsla

Fyrir að yrkja fyrir rest
fá mun ég launin hreppa.Því
væri kannski bara best
að breyta til og sleppa því!


Abbababb

Vissulega er vísnagerð mitt fag.
Vart því skilur nokkur maður í.
Annars birtist engin hér í dag.
Allt í einu tek ég eftir því!

Lögfræði

Vinir mínir voru um sinn
vörslusviptir.
Málaflutningsmaðurinn
máli skiptir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband