PISA

Framkvæmd PISA frekar gróf.
Fjarri bættur skaðinn.
Þau sem áttu að þreyta próf
þreyta próf í staðinn.

(Prófin þreyta krakkana sem áttu að þreyta þau)


mbl.is Menntamálastofnun fær „falleinkunn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ráð nema á kjörum sé tekið

Kvarta mátti kjararáð,
kunni skil á raunum.
Bjarna þótti bara ráð
að bæta við það launum.


mbl.is Hækkaði laun kjararáðs um 7,3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantraust

Andstaða stjórnar mun örlítið bitur
enda næstum því vitur,
en ráðherra dómsmála situr og situr
og situr og situr og situr.


mbl.is Vantrauststillagan gegn ráðherra felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynning frá forsætisráðherra

Daman sem dómsmálajöfur,
dúndrandi röggsöm og kná,
stenst mínar ströngustu kröfur.
Ég stugga henni ekki frá.

mbl.is Leggja fram vantrauststillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2018
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband