Skrúfa fyrir

Sóun er þetta segi ég bara!
Sjáið þið alls ekki neitt?
Vitið þið ekki að vatn á að spara
ef viljið þið að það sé heitt!


mbl.is Metnotkun á heitu vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heitt & kalt

Passa þarf vel í hvað peningar fara.
Prósentur best er að skrá.
Vatnið í borginni verður að spara,
en vökva samt pálma og strá.


mbl.is Útlit fyrir metnotkun um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræktun

Allir sjá ef að er gáð
ýmsar gerðir tálmana.
Ég held það væri heillaráð
að hætta strax við pálmana.


mbl.is Pálmarnir sagðir rómantískt fíaskó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjargráð Bjarna

Oft veldur nauðar og ofgnóttar bil
erfiðu samningaþjarki.
Til þess að laga það leggjum við til
lækkun á frítekjumarki.


mbl.is Skattatillögur ASÍ auki jaðarskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýslað í Eyjum

Vikið hefur fetið frá
flokksböndunum tryggu.
Páli líst víst ekkert á
atferlið hjá Siggu.


mbl.is Páll óánægður með dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítur á priki

Stoltur kynnir holu-Hjálmar,
hróðugur, laus við nísku:
Stæðilegir Strandapálmar!
(strá eru dottin úr tísku)


mbl.is „Í hvaða heimi lifir Hjálmar Sveinsson?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klausturbólga

Svekktir vilja sumir banna
svona rugludólga,
enda flestra Miðflokksmanna
á meðal nokkur ólga.


mbl.is Ólga meðal Miðflokksmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Alþingi eftir hádegið

Umræðupólitík veggjaldavæðingar
vansælir nefndarmenn studdu.
En burgeisar núna og bókmenntafræðingar
blaða í hvítri skruddu.


mbl.is Veggjöldin eiga nokkuð í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti fundurinn ekki heima á Klaustri?

Málefni fundarins mun ég nú skýra:
Miðflokknum búin var hefnd.
En aumingja Bergþór vill auðvitað stýra
auðlindasamgöngunefnd.


mbl.is Orðbragðið engu skárra en á Klaustri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drög að sannleika

Píratarnir naga neglur,
nú skal leggja drög...
Augljóst mun að ýmsar reglur
ekki standast lög.


mbl.is Verði að meta sannleiksgildi ummælanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband