27.7.2022 | 11:46
Óvissa
Búast má við breyttun svip;
betri að mörgu leyti.
"Alltaf má fá annað skip
og annað föruneyti!"
![]() |
Allri áhöfn Sólborgar sagt upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2022 | 19:19
Afturgöngur
Þar voru þandar taugar;
þvílíkur fítonskraftur!
Þá voru dáðir draugar
er druslurnar gengu aftur!
![]() |
Myndir: Druslur gengu aftur um miðbæ Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2022 | 17:38
Ekki rétta málningin?
Afsakið, já aðeins bíðið,
yður við ég nefni:
ef þér vilduð verjast stríðið,
vantar betra efni!
![]() |
Málaði stop war og var handtekin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2022 | 20:15
Bót í máli
Verðlagið virðist hækkandi.
Vondur þykir sá fjandi.
Gott þó að fari fækkandi
fávitum hér á landi.
![]() |
Segir fávitunum fara fækkandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2022 | 12:43
Engin fyrirhöfn
Vel skyldi ávallt að verslunum hlúð
og viðskiptum. Gott er að heyra
sagt frá alveg hreint sjálfvirkri búð
svo að við keypt getum meira.
![]() |
Fyrsta alsjálfvirka matvörubúðin opnaði í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2022 | 17:40
Hér og þar
Heldur lítið hafa að gera
hér um þessar slóðir,
en einhversstaðar verða að vera
vondir bæði og góðir!
![]() |
Áhyggjur af hjólhýsafólki í Laugardal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2022 | 15:12
Skatturinn þarf húsaskjól
Stórhýsin rísa hlið við hlið;
hafa sum gert menn ríka.
Ört þýtur höllin upp á við.
Efalaust skatturinn líka.
![]() |
Höfuðstöðvar Skattsins þjóta upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2022 | 22:38
Hugkvæmni - Hagkvæmni
Landinn fær sér lokur þær
sem Litháarnir smyrja.
Hagnaðurinn hreinn og tær,
hann er rétt að byrja!
![]() |
Smurðar samlokur fluttar alla leið frá Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2022 | 12:13
Á salerninu
Mikið var sá maður lúinn.
Meðvitundin rofnaði.
En hvort var hann alveg búinn
áður en hann sofnaði?
![]() |
Sofnaði á salerni og missti af flugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2022 | 15:55
Vísir í vinnslu
Umræða dagsins dökkleit er.
Degi er heitt í sinni.
Atburðarásin eftir fer
uppskrift úr Verbúðinni!
![]() |
Eins og sena úr Verbúðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
arnorbl
-
holmdish
-
olinathorv
-
raksig
-
jona-g
-
marzibil
-
steinunnolina
-
natturbarn
-
eythora
-
svanurg
-
saemi7
-
eggmann
-
mynd
-
hrafnaspark
-
torfusamtokin
-
moguleikhusid
-
ktedd
-
zeriaph
-
huldumenn
-
gudni-is
-
sabroe
-
baenamaer
-
limran
-
hof
-
gudmunduroli
-
vestskafttenor
-
visur7
-
vefritid
-
hoskibui
-
gattin
-
jonvalurjensson
-
rattati
-
bardi
-
dagursv
-
elfarlogi
-
janus890
-
hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði