Jamm og jæja

Þótt norðanmenn að sínum sið
sólu mjög af láti,
augljóslega erum við
ekki á sama báti.


Ójá

Lund er orðin leið og við
lítt í skapi hýrnum;
eftir vori vonlaus bið
og veðrið fast í gírnum!


mbl.is Sólarleysið það óvenjulegasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá almættinu

Sanngjarna nokkuð ég sendingu tel.
Svosem ekkert að þakka.
Með ósk um að framtíðin fari nú vel
ég færi ykkur eld á Bakka.


mbl.is Fjórum sinnum verið slökkt á ofninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vætutíðin mikla

Rigningar eru nú í
allflestum krummaskuðanna:
þeir eru farnir í frí,
flestallir veðurguðanna.

mbl.is Of kalt fyrir ánamaðkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2018
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband