28.2.2021 | 22:00
Fréttaþorsti
Einhver gæti þess orðið bið,
þótt ástandið megi kanna,
að atburðarásir verði við
væntingum fréttamanna.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2021 | 20:46
Birta
Hér er texti Evrovisionlags Íslands fyrir 20 árum.
(Höfundur E.B.)
Skýringatexti fylgir í kjölfarið.
Óveður skall mér á.
Skaut mér skelk í tá.
Og mér var brugðið.
Í hamagöngu sjónlaus.
Leist mér ekkert á.
Allt öfugsnúið.
Í hálfum dansi, annars hugar.
Lít ég upp og sé þig þar.
Birta, bíddu eftir mér.
Mér leiddist eftir þér um tíma
og nú langar mig með þér.
Birta, bíddu eftir mér.
Af öllu mínu hjarta
þá leita ég að þér.
Birta, bíddu eftir mér (o.s.frv.)
Nú hanga á mér fötin.
Restin fauk mér frá.
Var næstum búinn.
Líðanin er skrýtin
og skelfing litlaus já,
og farin trúin.
Ég skil textann þannig að þar mæli skáldið fyrir munn sjónlauss manns sem
liggur úti í heitum potti í orlofshúsahverfi Blindrafélagsins og hefur aðra
stóru tána upp úr vatninu. Þá gerist það að fyrirvaralaust skellur á óveður:
Óveður skall mér á.
Þar sem maðurinn liggur ofan í heitu vatni finnur hann ekki fyrir veðrinu
nema á tánni sem stingst upp úr vatninu í pottinum:
Skaut mér skelk í tá.
Maðurinn hefur legið með lokuð augu (enda tilgangslaust að hafa þau opin þar
sem hann er blindur) og í algjörri slökun í pottinum. Þegar vonda veðrið
skýtur skelk í tá hans, lýsir næsta lína eðlilegum viðbrögðum blinds manns
með lokuð augu sem á sér einkis ills von og síst af öllu að fá skelk í tána
sem stendur upp úr vatninu í þessum notalega heita potti:
Og mér var brugðið.
Næsta erindi er myrkt en svo er að skilja að maðurinn í heita pottinum hafi
hrokkið svo við að hann hafi sprottið upp úr heita pottinum og rásað í óstjórnlegu æði um
pallinn í kring. Hér kemur skýrt fram í textanum að það er blindur maður sem talar:
Í hamagöngu sjónlaus.
Maðurinn er skelfingu lostinn:
Leist mér ekkert á.
Í hamagöngu sinni ætlar blindi maðurinn komast inn í bústaðinn en finnur
ekki inngöngudyrnar í látunum og rekur höfuðið illa í gluggann við hliðina á dyrunum. Þá er eðlilegt, þar sem honum fannst að dyrnar ættu að vera þar sem glugginn var, að hann
segi við sjálfan sig:
Allt öfugsnúið.
Blindi maðurinn er hálfvankaður eftir að hafa rekist á gluggann og skjögrar um pallinn
hjá heita pottinum. Reikul spor hans minna að nokkru leyti á dans og hann er utan við sig
eftir höfuðhöggið:
Í hálfum dansi, annars hugar.
Það er algengt blint fólk "sjái" daufar skynmyndir í myrkum huga sér. Þessvegna er eðlilegt - í veröld kvæðisins - að blindi maðurinn taki svo til orða:
Lít ég upp og sé þig þar.
Hvað sér hann með innra auga sínu. Honum er hrollkalt og hann sér það sem hann vantar til þess að komast inn í sumarbústaðinn og geta farið úr blautri skýlunni: Birtu, eða réttara sagt eðlilega sjón. Í fyrstu línu erindis ávarpar hann eðlilega sjón, kallar hana birtu, og biður hana að bíða eftir sér; þ.e. hann veit sem er að eðlileg sjón vill ekki vera í návist blinds manns:
Birta, bíddu eftir mér.
Næsta lína er myrk eins og vera ber um línu í kvæði um sjónlausan mann.
Mönnum leiðist, satt er það. Mér leiðist, er algengt orðalag og ekki óalgengtað sjónlausir menn sem hafa hrakist upp úr heitum potti og er orðið kalt áskýlunni taki svo til orða: Mér leiðist. Næstu tvo orð - eftir þér hljóta að vísa til þess að blindi maðurinn sé á eftir þeim, sem hann talar við, þ.e. Birtu. M.ö.o. honum leiðist að vera fyrir aftan Birtu en það er aðeins tímabundið:
Mér leiddist eftir þér um tíma.
Ef til vill vísaði línan hér á undan til einhvers kynferðilegs, t.d. að sjónlausa manninum leiðist að vera fyrir aftan Birtu af því að hann hafi ekki áhuga á að taka hana aftan frá. En smám saman hefur viðhorf hans breyst:
....og nú langar mig með þér.
Og hann langar allt í einu alveg afskaplega mikið til að taka viðfangið sem hann ávarpar, og óttast að sá það sé á förum:
Birta, bíddu eftir mér.
Næsta lína segir okkur enn meira um blinda manninn. Hann er ekki aðeins sjónlaus heldur vinnur hann hjá sparisjóðunum:
Af öllu mínu hjarta.
Og næsta lína undirstrikar enn frekar að þessi starfsmaður sparisjóðanna er blindur því að hann segist vera að leita að þeim sem við vitum nú þegar að er rétt fyrir framan hann:
Þá leita ég að þér.
Birta, bíddu eftir mér (o.s.frv.)
Og nú er greinilegt að eitthvað hefur gerst á milli hins blinda starfsmanns sparisjóðsins og hugsýnar hans, sem hann kallar Birtu. Sundskýlan er í hnuðli um ökklana á honum:
Nú hanga á mér fötin.
Hann var með liminn við afturhlutann á Birtu en kom of fljótt svo að sáðvökvi blés út um allt í óveðrinu, sem sagt var í fyrsta erindi hafa skollið fyrirvaralaust á:
Restin fauk mér frá.
Blinda manninum þykir niðurstaðan ekki góð því að hann ætlaði að gera meira. Næsta lína er övæntingaróp sem lýsir vonbrigðum yfir því að hafa ekki geta fullnustað verkefnið:
Var næstum búinn.
Lokaerindið er eðlilegt niðurlag. Sjónlausum starfsmanni sparisjóðsins líður undarlega þar sem hann hímir á pallinum með skýluna um ökklana og óveðrið geysar allt í kringum hann:
Líðanin er skrýtin.
Óþarfi er taka fram það, sem segir í næstu línu, því að öllum er ljóst að sjónlausum mönnum getur ekki liðið í lit:
Og skelfing litlaus já.
Hann hnykkir út með því að fullyrða hann hafi enga trú á að fá birtuna aftur:
Og farin trúin.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2021 | 15:36
Ekki snilld
Ljóð | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2021 | 09:41
Snilld
Eitt og annað sniðugt í snilligáfu felst
er snerta kann við öfund
Hér er lítil vísa, sem vissi þetta helst
og valdi réttan höfund!
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2021 | 11:16
Neyðarkall
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2021 | 00:23
Meira hröngl
Sóttvarnarreglurnar heldur að herðast, (*)
á höftunum varla er lát.
Ennþá er ráðlagt að forðast að ferðast
og fara að öllu með gát.
(* rímsins vegna)
Nú vona það allir að vírusinn sjatni
og vörnunum beitt sé af natni.
En heldur það einhver að heimurinn batni
ef Háskólinn fyllist af vatni?
Þormóður smiður á Smjörhaga
smúlaði búsi´inná Fjördaga.
Þjóraði þá
þar til hann lá.
Þetta var einskonar örsaga!
Oft er gott að láta undan löngunum
og leyna sér að baki klettadröngunum.
Gera eitt og annað
sem ef til vill er bannað
sólarmegin í Siglufjarðargöngunum!
Ljóð | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2021 | 23:53
Klakahröngl
Ég óska öllum góðs árs. Ég hef verið heldur skeytingarlaus um
bloggið undanfarið. Hér er sýnishorn af vísnarusli sem hefur
safnast upp hjá mér frá áramótum. Sumt gert af ákveðnu
tilefni,annað af tilefnislausu.
Öllum hér með óska vil
árs og friðar.
Berist ykkur blessun til
baks og kviðar.
***
Í miðju frá morgunsári
munstrast hádegisbil.
Nú er annar í ári
að því mér reiknast til.
***
Vart er honum vit til baga.
Víða er lítil beit.
Fljótlegt væri fram að draga
það fáa sem hann veit.
***
Upp er runnin Trumpsins tíð:
"Traustum studdur hernum býð
Ameríku upp á stríð,
enda stutt að fara.
***
Gaurar vopnum væddir.
Virtust raunamæddir
aðrir tveir.
Urðu þeir
afskaplega hræddir.
***
Oft er vísan undurfríð
ef hún rímar.
Bráðum kemur bólutíð
og betri tímar.
Líkt öðrum hér birtir blaður.
Bölmóðs kennir
óvirkur athafnamaður
sem engu nennir.
Gera litla vísu vil
um vora líðan.
Best er hana að búa til
og birta síðan.
Vanalega vel ég sef.
Vanda sérhvern brag.
Og nú bráðum ort ég hef
alveg nóg í dag!
Ljóð | Breytt 2.2.2021 kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
arnorbl
-
holmdish
-
olinathorv
-
raksig
-
jona-g
-
marzibil
-
steinunnolina
-
natturbarn
-
eythora
-
svanurg
-
saemi7
-
eggmann
-
mynd
-
hrafnaspark
-
torfusamtokin
-
moguleikhusid
-
ktedd
-
zeriaph
-
huldumenn
-
gudni-is
-
sabroe
-
baenamaer
-
limran
-
hof
-
gudmunduroli
-
vestskafttenor
-
visur7
-
vefritid
-
hoskibui
-
gattin
-
jonvalurjensson
-
rattati
-
bardi
-
dagursv
-
elfarlogi
-
janus890
-
hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði