17.12.2015 | 00:08
Nei
Ég skil nú bara ekki hvernig fólk sem hefur fengið hundruð þúsunda í afturvirkar kjarabætur getur sagt nei við því að elli- og örorkulífeyrisþegar fái hækkun á sínum launum frá sama tíma.
![]() |
Atkvæðagreiðsla stendur enn yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2015 | 10:31
Frá Alþingi
Veikum og öldruðum vikan er sár.
Veruleikinn er sýndur.
Í Alþingisbjöllunni hljómur er hár
og heilbrigðisráðherra týndur.
![]() |
Menn eru í algjörri sjálfheldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2015 | 18:53
Frá Alþingi
Ef einhver skyldi ekki vita það, þá fara nú fram umræður á Alþingi um um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Þau orð sem hvað oftast hljóma í ræðum
gagnrýnenda þess er "borð fyrir báru."
Naumt sér við neglur skáru
að nirfla hæstvirtra sið,
þótt nú sé borð fyrir báru
að bæta einhverju við.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2015 | 08:42
Morgundraumur
Hratt af stað framkvæmdum Sigmundur sá
sem er hin mesta driffjöður:
Útbygging rísa skal Alþingi hjá,
áður teiknuð með skriffjöður.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2015 | 18:43
Heyrðu snöggvast
Á þingfundi í dag var dreift tillögu frá stjórnaþingmanni um
að draga til baka ríkisábyrgð til Íslenskrar erfðagreiningar.
Heyrðu karlinn, Kári minn,
kæri vinur góði,
úti skal með aðgang þinn
að okkar ríkissjóði.
![]() |
Þingfundi slitið á miðnætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2015 | 01:12
Jafnvel þótt Óli hætti
Þótt kvæði stundum kveði smá;
kunni að beita amboði
og vinir mínir vilji, þá
verð ég ekki í framboði.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2015 | 11:46
Sirkus Alþingis ekki smart
Í gærkvöldi var fluttur enn einn skrípaþátturinn á útvarp Alþingi. Stefnt var á kvöld- og næturfund, en ekki fékkst uppgefið á nokkurn hátt hversu lengi þingfundur ætti að standa. Aftur og aftur hófust umræður um fundarstjórn forseta, þar sem hver þingmaðurinn á fætur öðrum bar upp þá einföldu spurningu hversu lengi væri áætlað að þingfundur ætti að standa.
Ekki fengust þingforsetar til að gefa nokkuð upp um það og tömdu sér véfréttastíl Bessastaðabónda.
Er ekki kominn tími til að endurskoða þingsköp? Athuga hlutverk þingforseta. Klippa á þræðina sem gerir hann að strengjabrúðu ríkisstjórnarinnar. Verður ekki að fá óháða aðila til að stjórna þingfundum?
Og hjálpa til við að koma á lýðræðislegu þingræði. Og fækka sýningum á þessum opinberu skrípasýningum frá Hinu "Háa" Alþingi.
![]() |
Mjög af yngri þingmönnum dregið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2015 | 21:09
Óskhyggja?
Bráðum mun sem betur fer
brautargengi dvína
þess sem oftast illa fer
með ómagana sína.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2015 | 23:44
Með (sultar)ólíkindum
Daufur var grauturinn sem ég sauð;
saltið vantaði, líka brauð.
Státin vill stjórn
stöðuga fórn.
Gef oss í dag vora daglegu nauð.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2015 | 17:01
Étið það sem úti frýs
Þingmenn sjálfstæðisflokks og framsóknarflokks greiddu á Alþingi atkvæði gegn tillögu um að aldraðir og öryrkjar fengju afturvirkar kjarabætur líkt og meginþorri annara landsmanna.
Hversvegna skilja fáir.
Þeir sem fyrir aldna gera ekkert enn
eiginlega virðast vera
vondir menn.
![]() |
Hærra veiðigjald, hærri lífeyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Skruddublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 129085
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
arnorbl
-
holmdish
-
olinathorv
-
raksig
-
jona-g
-
marzibil
-
steinunnolina
-
natturbarn
-
eythora
-
svanurg
-
saemi7
-
eggmann
-
mynd
-
hrafnaspark
-
torfusamtokin
-
moguleikhusid
-
ktedd
-
zeriaph
-
huldumenn
-
gudni-is
-
sabroe
-
baenamaer
-
limran
-
hof
-
gudmunduroli
-
vestskafttenor
-
visur7
-
vefritid
-
hoskibui
-
gattin
-
jonvalurjensson
-
rattati
-
bardi
-
dagursv
-
elfarlogi
-
janus890
-
hross
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Formúla 1
- Íþróttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði