Willum Þór

Willum þór með vandfýsi
vel er búinn nesti:
Síma má í Svandísi
sjái hann heilsubresti.


mbl.is Svandís segir Willum alltaf geta „hringt í vin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur Þór

Guðlaugur glögglega skynjar
að gott er í málum að atast
og ófáar menningarminjar
mega hreint ekki glatast.


mbl.is Menningarminjar fara til Guðlaugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áslaug Arna

Víst þú mátt í vísindanna strauma
vilja þínum lauma.
Í hjarta þínu hugmyndirnar krauma.
Hafðu góða drauma.


mbl.is Áslaug: „Draumaráðuneyti fyrir flesta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Ingi

Vongóður ég vísa til
vinstri stefnu þinnar:
Að þú gerir einhver skil
öldrun þjóðarinnar.


mbl.is Ætlar að bæta kjör og stöðu aldraðra og öryrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný og betri (?) ríkisstjórn

Nýja ríkisstjórnin þarf líklega að fá einn svartan bíl í viðbót. Rafknúinn að sjálfsögðu - eða hvað?


mbl.is Nýtt ríkisráð fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fuglagreyin vita sínu viti

 

Tilfinningu þá ég þekki;
það er hvorki né.
Varpfuglarnir vilja ekki
vera í ESB.

Guð blessi umhverfið

Breyting völdum verður á.
Við sig sjallar bættu.
Þetta líst mér illa á:
Umhverfið í hættu!


mbl.is Framsókn stýri heilbrigðisráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækifærisvísa

Ráðsettur karlhlunkur reikaði á bar.
Reyndust þar brautirnar hálar.
Aumingja maðurinn einungis var
alsaklaus dreginn á tálar!

Er nauðsynlegt að brjóta þau?

Til að ekki stefni í strand
stöðug efnishyggja
þá skal hér með lögum land
líklega ekki byggja.

Að samþykkja sjálfan sig

Ég þarf ekki að rífast við Pétur og Pál.
Það plumar sig minn eigin flokkur.
Þegar við kjósum um þess háttar mál:
Það er í lagi með okkur.


mbl.is Kjörbréf allra þingmanna staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2021
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband