Til fyrirmyndar

P4060050Þessi mynd er úr Hafnarstræti á Akureyri. Bláa húsið er númer 31.
Það sker sig ekki úr heillegri götumyndinni, en hefur þó þá sérstöðu að vera u.þ.b. 90 árum yngra en hin húsin. Þarna var sem sagt fyrir nokkrum árum byggt nýtt hús með gömlu útliti. Nokkuð sem mætti gera meira af þar sem akkur er í að varðveita einhverjar heildarmyndir. Það eina sem er í rauninni frábrugðið að ytra útliti húsunum í kring eru gluggarnir, en þeir sitja heldur innar í veggjunum, sem eru allnokkru þykkri  en í þessum gömlu timburhúsum.

Ég er þeirrar skoðunar að oft sé þessi  leið hagkvæmari og betri til umhverfisverndunar; þ.e. að byggja nýtt frá grunni heldur en að halda upp á fáeinar heillegar spýtur úr illa förnum húsum, byggja í kringum þær, og telja svo að um uppgert hús sé að ræða, þótt harla fátt sé upprunalegt þegar upp er staðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

já..les allar vísurnar þínar. En ertu með eitthvað alveg nýtt! Er með áhuga á listamönnum..eins og þér. Veit ekkert hvað ég á að kommentera. bara flott hús og fallegt umhverfi. bara komið einu sinni til Akureyrar sem messagutti hjá Gæslunni..gamla Ægir..

Óskar Arnórsson, 6.4.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta fellur vel að umhverfinu. Þetta er virðuleg götumynd. Mér finnast nýju húsin sem eru innan við þessi líka falleg. Akureyri er rík af fallegum gömlum byggingum og er gamli skólinn minn ein aðalperlan. Takk fyrir að sýna þessa mynd.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.4.2008 kl. 00:22

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já, Hólmdís. Minnir mig að ég gleymdi að þakka fyrir mig sem er lágmarks kurteisi..svo ég geri það hér með..

Óskar Arnórsson, 7.4.2008 kl. 02:28

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Takk fyrir svarið kæri góði listamaður. Undarlegt! Fór sjálfur að fikta með paselmáleri heima, og ekki gert í 30 ár. Fyrsta konan mín heitinn, var listamaður og kenndi mér þetta. Las æfisögum  Vinsent Van Cogh,  veit að ég kann ekki að skrifa nafnið hanns. En hann fórnaði öllum sínum peningum fyrir listina, en það eitthvað örstutt á milli þessa vera snilligur og dapurleg sál.

Hans líf endaði illa. hef oft haaft sömu hugmyndir, en bjargast á síðust stundu, mörum sinnim. Það er þungur dómur að vera dæmdur í æfilanga sorg..veit ekki hvað ég hef gert af mér í mínum fyrri lífum..eina skýringin sem ég nota sem balans á þessi óþægindi..  

Óskar Arnórsson, 7.4.2008 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson

Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 127946

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Bjarni
  • strjálir
  • tásur
  • Leyfið
  • 20170922 164501[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband